Staðarreglur GKB
1. Vallarmörk, hælar og litaðar línur
Vallarmarkalína (Out of Bounds)
Innri mörk aðalvegar við 1., 2., 7., 8., 10., 11., 12., og 13., braut er skilgreint sem vallarmarkarlína. Boltar sem enda yfir innri línu (á vegi eða utar) eru utan vallarmarka.
2. Svæði merkt með bláum og hvítum hælum er friðlýst svæði (bannsvæði í grund í aðgerð)
Svæðið sem skilgreint er með bláum stikum með hvítum topp er bannreitur og á að meðhöndlast sem óeðlilegar vallaraðstæður, á 5. braut hægramegin, hóll fyrir framan 5. flöt, á 6. hóll hægramegin við flöt og hóll fyrir framan 14. braut. Taka verður vítalausa lausn frá truflun vegna bannreitsins samkvæmt reglu 16.1f, eða með því að láta bolta falla á fallreiti svæðanna. Ef bolti er tíndur í svæðinu má setja nýan bolta í leik.
3. Óhreyfanlegar hindranir
- Fjarlægðarstikur 100 m 150 m og 200 m
- Malar- og kurlbornir stígar
- Aðrar óhreyfanlegar hindranir - sjá skilgreiningu í golfreglunum
Fjarlægðar stikur (100, 150 og 200m), malar og kurlbornir stígar á vellinum eru óhreyfanlegar hindranir sem lausn er veitt frá samkvæmt reglu 16.1. Engin lausn fæst samkvæmt reglu 15.2.
4. Færslur á braut
Á Kiðjabergsvelli eru færslur ekki í gildi á brautum og flötum nema það sér sérstaklega auglýst af golfklúbbnum eða keppnisnefnd.
Leika skal boltanum eins og hann liggur í samræmi við golfreglurnar.
Svæði sem merkt eru með bláum stikum eða bláum línum teljast grund í aðgerð. Ef bolti leikmanns liggur á slíku svæði skal leikmaður taka lausn án vítis samkvæmt reglu 16.1
Að öðru leyti skal leika samkvæmt golfreglum The Royal and Ancient of St. Andrews.
Almennt víti fyrir brot á staðarreglu í höggleik/punktakeppni tvö högg.
Almennt víti fyrir brot á staðarreglu í holukeppni holutap.

