Bændaglíman 2026

Valur Benedikt Jónatansson • 11. september 2026

í ár er komið að konunum!

Hin árlega Bændaglíma GKB fer fram laugardaginn 12. september á Kiðjabergsvelli. Mótið er einn af skemmtilegustu viðburðum klúbbsins og markar jafnframt skemmtilegt „slútt“ á golfsumrinu.

Samkvæmt hefð skiptast konur og karlar á að gegna hlutverki bænda í Bændaglímu GKB – og í ár er komið að konunum. Tvær konur taka því að sér hlutverk bænda, leiða sitt hvort liðið og freista þess að stýra sínu liði til sigurs. Leikið verður út af öllum teigum samtímis kl. 10:00.

Keppt verður í tveggja manna Texas Scramble holukeppni, þar sem hver unnin hola gildir fyrir lið viðkomandi bónda. Þegar upp er staðið kemur síðan í ljós hvor bóndinn og hennar lið hafa betur í Bændaglímu GKB 2026.

Þátttakendur geta skráð sig bæði sem pör eða stakir leikmenn, en stökum leikmönnum verður raðað saman í lið.

Hluti af heildarþátttökugjaldi mótsins, að andvirði 250.000 króna, rennur til styrktarfélagsins Ljóssins. Við hvetjum félagsmenn til að taka þátt, eiga skemmtilegan dag á vellinum og styrkja um leið frábært málefni.

Að móti loknu verður verðlaunaafhending og lokahóf kl. 19:00, þar sem boðið verður upp á veislu að hætti Rakelar. Verð fyrir veisluna er 6.500 kr. á mann.

Þeir sem vilja geta einnig valið að mæta eingöngu í lokahófið. Þá þarf að hafa beint samband við Rakel fyrir fimmtudaginn 10. september.


Skráning hér í Bændaglímu GKB.

Eftir Börkur Arnvidarson 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik
Eftir Valur Jónatansson 22. ágúst 2026
Kvennasveit GKB í 6. sæti í 2. deild 50+
Eftir Valur Jónatansson 18. ágúst 2026
Karlasveitin í 5. sæti í 2. deild
Eftir Valur Jónatansson 11. ágúst 2026
GKB konur í 4. sæti í 65 ára og eldri
Eftir Valur Jónatansson 11. ágúst 2026
GKB í 5. sæti í sveitakeppni öldunga!
Eftir Valur Jónatansson 10. ágúst 2026
Prýðisfólk sigraði í Hjóna- og paramótinu