Tveir ásar á tveimur dögum
Tveir ásar og tveimur dögum
Það var heldur betur ástæða til að fagna á Kiðjabergsvelli um helgina þegar tveir kylfingar náðu draumahögginu og fóru holu í höggi – með aðeins eins dags millibili.
Föstudaginn 28. ágúst fór Samúel Guðmundsson holu í höggi á 12. holu vallarins og daginn eftir, laugardaginn 29. ágúst, endurtók Alexander Þórisson leikinn þegar hann setti boltann beint í holu á 16. holu.
Tveir ásar á tveimur dögum er skemmtileg leið til að ljúka ágúst mánuði á Kiðjabergsvelli.
Við óskum Samúel og Alexander innilega til hamingju með draumahöggin! 👏⛳️
Til hamingju, ásar!










