Lokun golfskála

1. október 2026

Golfskálinn lokar – Kiðjabergsvöllur áfram opinn

Frá og með 1. október verður golfskálinn á Kiðjabergi lokaður og hefðbundinni starfsemi í skálanum þar með lokið þetta árið.


Kiðjabergsvöllur er hins vegar enn opinn til golfleiks og verður það áfram á meðan veður og aðstæður leyfa.

Allar rástímabókanir og greiðslur fara fram í gegnum GolfBox. Kylfingar eru jafnframt beðnir um að staðfesta komu sína í Mitt Golf appinu með því að skanna QR-kóðann á skjánum við inngang golfskálans.


Við munum áfram fylgjast vel með aðstæðum og upplýsa um ástand og opnun vallarins eftir því sem líður á haustið.


Um leið og golfskálinn lokar viljum við nota tækifærið og færa félagsmönnum okkar og öllum þeim gestum sem heimsóttu Kiðjaberg í sumar kærar þakkir fyrir sumarið og ánægjuleg kynni.


Þótt enn séu vonandi nokkrir góðir golfdagar eftir á Kiðjabergi hlökkum við til að taka á móti félagsmönnum og gestum á ný þegar fer að vora.


Takk fyrir sumarið – og njótum haustsins á Kiðjabergi á meðan aðstæður leyfa!

Eftir Börkur Arnvidarson • 24. september 2026
Haust á Kiðjabergsvelli - Staða vallar og golfskála
Eftir Börkur Arnvidarson • 15. september 2026
J afntefli í Bændaglímu GKB 2026
Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson • 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson • 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson • 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson • 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Kvennasveit GKB í 6. sæti í 2. deild 50+
Eftir Valur Jónatansson • 18. ágúst 2026
Karlasveitin í 5. sæti í 2. deild