Kiðjabergsvöllur "Besti golfvöllur á Íslandi" af World Golf Awards þriðja árið í röð

Börkur Arnvidarson • 9. nóvember 2026

Kiðjabergsvöllur "Besti golfvöllur á Íslandi" af World Golf Awards þriðja árið í röð

Kiðjabergsvöllur bestur þriðja árið í röð!

Kiðjabergsvöllur hefur verið valinn besti golfvöllur Íslands árið 2026 (Iceland’s Best Golf Course) af World Golf Awards. Þetta er þriðja árið í röð sem völlurinn hlýtur þessa alþjóðlegu viðurkenningu og því sannarlega ánægjulegur áfangi í sögu Golfklúbbs Kiðjabergs.


World Golf Awards var veitt í 13. sinn og eru hluti af World Travel Awards, sem hafa frá árinu 1993 veitt viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í ferða- og þjónustugreinum um allan heim. Verðlaunin njóta alþjóðlegrar viðurkenningar og eru mikilvæg viðurkenning á gæðum og framúrskarandi þjónustu innan golf- og ferðaþjónustunnar. Alþjóðleg atkvæðagreiðsla hófst í ársbyrjun og lauk í lok október. Þátttakendur í kosningunni voru bæði fagfólk úr golf- og ferðaþjónustu, meðal annars ferðaskipuleggjendur, stjórnendur og fjölmiðlafólk, auk almennings.


Formaður GKB viðstaddur verðlaunaafhendinguna

Verðlaunaafhending World Golf Awards 2026 fór fram við hátíðlega athöfn á Madinaty Golf Club í Egyptalandi. Guðmundur Ásgeirsson, formaður Golfklúbbs Kiðjabergs, var viðstaddur hátíðina fyrir hönd klúbbsins og tók á móti viðurkenningunni fyrir Kiðjabergsvöll.


Mikil viðurkenning fyrir metnaðarfullt starf

„Við erum ótrúlega þakklát fyrir þennan heiður. Að vera kjörinn besti golfvöllur Íslands árið 2026, og það þriðja árið í röð, er frábær viðurkenning fyrir allt það ómetanlega starf sem hefur verið unnið á Kiðjabergi í fjölda ára. Sjálfboðaliðar, starfsfólk og stuðningsfólk klúbbsins hafa öll lagt sitt af mörkum og án þeirra væri þetta ekki mögulegt. Þessi viðurkenning hvetur okkur til að halda áfram á sömu braut og gera völlinn enn betri. Það var jafnframt mikill heiður að taka á móti verðlaununum fyrir hönd klúbbsins við glæsilega verðlaunaafhendingu World Golf Awards á Madinaty Golf Club í Egyptalandi,“ segir Guðmundur Ásgeirsson, formaður Golfklúbbs Kiðjabergs.


Guðmundur Fannar Vigfússon, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Kiðjabergs, tekur í sama streng og segir verðlaunin endurspegla það metnaðarfulla starf sem unnið hefur verið á Kiðjabergi undanfarin ár.

„Það er mjög ánægjulegt að sjá Kiðjabergsvöll hljóta þessa viðurkenningu þriðja árið í röð. Þetta er mikil viðurkenning fyrir Golfklúbb Kiðjabergs og allt það góða starf sem unnið hefur verið við uppbyggingu og umhirðu vallarins í gegnum árin. Verðlaunin eru okkur jafnframt mikil hvatning til að halda áfram á þeirri vegferð sem við erum á og gera enn betur. Vallarstarfsmenn GKB hafa unnið af mikilli ástríðu og metnaði og þessi árangur er okkur öllum mikið ánægjuefni,“ segir Guðmundur Fannar.


Sameiginlegur árangur

Þriðji sigurinn í röð er mikil viðurkenning fyrir Golfklúbb Kiðjabergs og endurspeglar þann metnað, fagmennsku og dugnað sem hefur einkennt uppbyggingu og umhirðu Kiðjabergsvallar undanfarin ár.

Golfklúbbur Kiðjabergs færir starfsfólki, sjálfboðaliðum, félagsmönnum, samstarfsaðilum og öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum til uppbyggingar vallarins innilegar þakkir. Þessi árangur er sameiginlegur og hvatning til að halda áfram að þróa og bæta Kiðjabergsvöll til framtíðar.


Sjá myndir hér fyrir neðan af heimsókn Guðmundar og Jónínu til Egyptalands.


Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 9. nóvember 2026
Aðalfundur GKB verður 12. desember!
Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 12. október 2026
Kiðjabergsvöllur lokar eftir gott golfsumar!
1. október 2026
Golfskálinn lokar – Kiðjabergsvöllur áfram opinn
Eftir Börkur Arnvidarson • 24. september 2026
Haust á Kiðjabergsvelli - Staða vallar og golfskála
Eftir Börkur Arnvidarson • 15. september 2026
J afntefli í Bændaglímu GKB 2026
Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson • 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson • 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson • 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson • 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts