Haust á Kiðjabergsvelli - Staða vallar og golfskála
Haust á Kiðjabergsvelli - Staða vallar og golfskála
Nú þegar líður að lokum september mánaðar er umferð um Kiðjabergsvöll farin að minnka og starfsemi golfskálans tekur breytingum í takt við það.
Rakel hefur nú lokið veitingaþjónustu sinni þetta golftímabilið og viljum við þakka henni kærlega fyrir sumarið og þær góðu veitingar sem hún hefur veitt félagsfólki og gestum sumarsins.
Það sem eftir lifir september verður takmörkuð og óregluleg opnun í golfskálanum, eftir aðstæðum og umferð á vellinum. Golfskálinn mun síðan loka í lok september.
Kiðjabergsvöllur verður áfram opinn eftir því sem veður og aðstæður leyfa. Rástímar skulu bókaðir í gegnum GolfBox.
Við biðjum alla kylfinga um að staðfesta komu sína í Mitt Golf appinu áður en leikur hefst. Það er gert með því að skanna QR-kóða á staðnum:
- Sé golfskálinn opinn er QR-kóðinn aðgengilegur í móttökunni.
- Sé golfskálinn lokaður má finna QR-kóðann í glugga golfskálans við inngang.
Með þessu getum við áfram haft góða yfirsýn yfir umferð og nýtingu vallarins þótt opnun golfskálans sé takmörkuð.
Við munum upplýsa reglulega um opnun og ástand vallarins eftir því sem líður á haustið, enda geta aðstæður breyst hratt á þessum árstíma. Við hvetjum kylfinga því til að fylgjast vel með miðlum Golfklúbbs Kiðjabergs.
Við hvetjum félagsmenn og gesti til að nýta góða haustdaga og njóta Kiðjabergsvallar á meðan aðstæður leyfa. 🍂⛳️









