Jafntefli í Bændaglímu GKB 2026
Jafntefli í Bændaglímu GKB 2026

Síðastliðinn laugardag fór hin árlega Bændaglíma GKB fram á Kiðjabergsvelli. Í ár var komið að konunum að leiða liðin og voru það þær Jónína Magnúsdóttir, fyrirliði Bláa liðsins, og Regína Sveinsdóttir, fyrirliði Rauða liðsins, sem stýrðu sínum liðum til leiks.
Alls tóku 96 kylfingar þátt í mótinu, 48 í hvoru liði. Leikið var tveggja manna Texas Scramble, þar sem hvert par keppti gegn pari úr hinu liðinu og hver unnin viðureign skilaði liði stigi.
Alls voru leiknar 24 viðureignir og var spennan mikil allt til loka. Þegar öll úrslit höfðu verið talin saman kom í ljós að liðin voru hnífjöfn – 12 stig gegn 12 – og því lauk Bændaglímunni með jafntefli þetta árið.
Veðrið lék svo sannarlega við þátttakendur þennan dag og buðu Kiðjaberg og nágrenni upp á sínar bestu hliðar. Aðstæður voru eins og best verður á kosið og sköpuðu frábæra umgjörð um skemmtilegan golfdag.
Eins og ávallt í Bændaglímu GKB var góður félagsskapur og skemmtun í forgangi. Það fór ekki á milli mála að þátttakendur nutu dagsins á fallegum Kiðjabergsvelli og stemningin var góð frá fyrsta höggi til þess síðasta.
Deginum lauk síðan með lokahófi um kvöldið þar sem keppendur gerðu upp daginn og nutu frábærra veitinga hjá Rakel og Daníel í góðum félagsskap.
Líkt og í fyrra hafði Bændaglíman einnig góðan málstað að leiðarljósi. 250.000 krónur af þátttökugjöldum mótsins renna til styrktarfélagsins Ljóssins, og er okkur sönn ánægja að geta með þessum hætti lagt okkar af mörkum til mikilvægs starfs félagsins.
Við þökkum Jónínu og Regínu fyrir frábæra liðsstjórn og öllum þátttakendum fyrir einstaklega skemmtilegan dag.
Úrslit mótsins má sjá hér
Takk fyrir frábæra Bændaglímu – sjáumst aftur að ári!













