Sveitakeppni kvenna 50+

Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026

Kvennasveit GKB í 6. sæti í 2. deild 50+

Íslandsmót golfklúbba 2026 í 2. deild kvenna 50 ára og eldri fór fram á Grundarfjarðarvelli hjá Golfklúbbnum Vestarr dagana 20.-21. ágúst. Golfklúbbur Kiðjabergs sendi vaska sveit, sem hafnaði í 6. sæti og hélt sæti sínu að ári.


Fyrirkomulagi mótsins var breytt á öðrum keppnisdegi vegna veðurspár. Fjórða og fimmta umferð voru leiknar yfir níu holur í stað 18, þar sem ekki var útlit fyrir að hægt yrði að leika fimmtu umferðina í dag, laugardaginn 22. ágúst.


Golfklúbbur Akureyrar stóð uppi sem sigurvegari eftir 2-1 sigur gegn sameiginlegri sveit Golfklúbbsins Hamars Dalvík og Golfklúbbs Fjallabyggðar í úrslitaleiknum. GA tryggði sér þar með sæti í 1. deild kvenna 50 ára og eldri að ári. Golfklúbburinn Vestarr endaði í þriðja sæti eftir 2-1 sigur gegn Golfklúbbi Borgarness.

 

Lokastaðan í 2. deild kvenna 50+ árið 2026

Golfklúbbur Akureyrar

Golfklúbburinn Hamar Dalvík/Golfklúbbur Fjallabyggðar

Golfklúbburinn Vestarr

Golfklúbbur Borgarness

Golfklúbburinn Setberg

Golfklúbbur Kiðjabergs

Golfklúbbur Húsavíkur

Golfklúbbur Öndverðarness

Golfklúbbur Selfoss


Þessar skipuðu sveit GKB:

Brynhildur Sigursteinsdóttir

Guðný Tómasdóttir

Þuríður Ingólfsdóttir

Stella Hafsteinsdóttir

Áslaug Sigurðardóttir

Þorbjörg Albertsdóttir


Sjá öll úrslit HÉR.


1. október 2026
Golfskálinn lokar – Kiðjabergsvöllur áfram opinn
Eftir Börkur Arnvidarson • 24. september 2026
Haust á Kiðjabergsvelli - Staða vallar og golfskála
Eftir Börkur Arnvidarson • 15. september 2026
J afntefli í Bændaglímu GKB 2026
Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson • 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson • 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson • 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson • 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik
Eftir Valur Jónatansson • 18. ágúst 2026
Karlasveitin í 5. sæti í 2. deild