World Golf Awards 2026 tilnefnir Kiðjabergsvöll

Börkur Arnvidarson • 2. mars 2026

Kiðjabergsvöllur tilnefndur af World Golf Awards 2026

Golfkúbbi Kiðjabergs hefur borist tilkynning frá framkvæmdastjóra "World Golf Awards" um að Kiðjabergsvöllur hafi verið tilnefndur þriðja árið í röð í flokki "Iceland's Best Golf Course 2026."  World Golf Awards eru hluti af World Travel Awards™, sem stofnað var árið 1993 til að verðlauna framúrskarandi árangur í ferða- og þjónustu tengda golfi um allan heim. Kiðjaberg hlaut verðlaunin tvö síðustu árin í þessum flokki. 


"Við erum virkilega stolt af því að hafa hlotið verðlaunin bæði 2024 og 2025. Það er mikil  virðurkenning fyrir klúbbinn og allt starfið í heild sinni og þeirri vinnu sem lögð er í að viðhalda vellinum góðum. Við viljum virkilega bjóða upp á góða þjónustu og þessi verðlaun hafa svo sannarlega búið til hvata til að gera enn betur," sagði Guðmundur Fannar Vigfússon, framkvæmdastjóri GKB.


Kosning er nú hafin á heimasíðu World Golf Awards og getur almenningur jafnt sem fagfólk í golf-ferðaþjónustu kosið þann völl sem þeir telja skara framúr. Kosning stendur til 1. október 2026 og verða sigurvegarar tilkynntir í kjölfarið við hátíðlega verðlaunaafhendingu World Golf Awards.


Við hvetjum alla golfáhugamenn, jafnt félagsmenn sem aðra, til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni.


Hægt er að kjósa HÉR


Myndir: Formaðurinn Guðmundur Ásgeirsson og frú fóru til Portúgals haustið 2024 og tóku á móti World Golf Awards verðlaununum fyrir hönd klúbbsins.

Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 12. október 2026
Kiðjabergsvöllur lokar eftir gott golfsumar!
1. október 2026
Golfskálinn lokar – Kiðjabergsvöllur áfram opinn
Eftir Börkur Arnvidarson • 24. september 2026
Haust á Kiðjabergsvelli - Staða vallar og golfskála
Eftir Börkur Arnvidarson • 15. september 2026
J afntefli í Bændaglímu GKB 2026
Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson • 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson • 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson • 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson • 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik