Aðalfundur GKB á morgun, laugardaginn 13. desember

12. desember 2025

Aðalfundur GKB á morgun, laugardaginn 13. desember kl. 13 í golfskála GKB

Aðalfundur GKB 2025 verður haldinn á morgun, laugardaginn 13. desember, á slaginu kl. 13.  í golfskálanum Kiðjabergi

Dagskrá fundarins svohljóðandi
Á aðalfundi skulu tekin fyrir eftirfarandi mál:
1. Fundarstjóri og fundarritari kosnir.
2. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
4. Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga klúbbsins.
5. Lagabreytingar kynntar og teknar til afgreiðslu.
6. Tillaga stjórnar um félagsgjöld lögð fram.
7. Kosning stjórnarmanna og skoðunarmanna samkvæmt samþykktum lögum klúbbsins.
8. Önnur mál.

Ársreikningur hefur verið sendur á félagsmenn í tölvupósti (Mailchimp). Ef ársreikningur hefur ekki skilað sér til félagsmanna endilega senda póst á gkb@gkb.is

Við vonumst til að sjá sem flesta klúbbmeðlimi, taka þátt í umræðum og koma sínu á framfæri. Ef áhugi er fyrir því að taka þátt í starfi klúbbsins t.d. nefndum eða öðru hvetjum við þá einstaklinga til að bjóða sig fram.

Ath. að prentuð eintök af ársreikningi verða ekki á staðnum og verða félagsmenn GKB sem mæta á fundinn að koma með sitt eigið eintak ef þeir vilja vera með slíkt á meðan fundi stendur.

Eftir Valur Jónatansson 11. júní 2026
Hafsteinn Þór á besta skorinu!
Eftir Valur Jónatansson 6. júní 2026
Yin & Yang á 17 höggum undir pari!
Eftir Valur Jónatansson 30. maí 2026
"Eilíf fergurð" kom, sá og sigraði!
Eftir Valur Jónatansson 21. maí 2026
Opnun Kiðjabergsvallar
Eftir Valur Jónatansson 20. maí 2026
GJG Icelandic Juniors International 2026
Eftir Valur Jónatansson 15. maí 2026
Grand Open 30. maí
Eftir Börkur Arnvidarson 12. maí 2026
Vinnudagur GKB verður 23. maí
Eftir Valur Jónatansson 23. apríl 2026
Gleðilegt golfsumar!
Eftir Valur Jónatansson 19. apríl 2026
Völlurinn viðkvæmur fyrir ágangi
Eftir Börkur Arnvidarson 2. mars 2026
Kiðjabergsvöllur tilnefndur af World Golf Awards 2026