Birkir Már nýr framkvæmdastjóri GKB

Gkb gkb • jún. 01, 2020

Birkir Már ráðinn framkvæmdastjóri GKB

Birkir Már Birgisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Kiðjabergs. Hann tók til starfa í byrjun maí og mun einnig sjá um vallarstjórn klúbbsins, enda meira en tvæ vetra á þeim vettvangi. Hann lærði golfvallarfræði á sínum tíma í Elmwood í Skotlandi.

Birkir Már þekkir vel til á Kiðjabergi því hann var vallarstjóri þar 2007 til 2009 og „fór þaðan í stutt stopp í Brautarholtið áður en mér var boðið að taka við sem vallarstjóri Grafarholts og var í fimm ár þar áður en ég tók við sem yfirvallarstjóri GR. Var í því starfi í tvö ár, en snéri mér þá að ferðaþjónustunni og var sjálfstætt starfandi þar þangað til í mars síðastliðinn þegar allt fór á hliðina vegna Covid 19,“ sagði Birkir.

Er það ekki mikil áskorun fyrir þig að taka við sem framkvæmdastjóri GKB? 
„Jú, vissulega er þetta áskorun en ég þekki vel til hérna. Ég ætti að búa að nokkurri reynslu eftir að hafa unnið í kringum golfvelli í 17 ár. Hef alltaf haldið nánu sambandi við Gunnar Þorláksson, formann vallarnefndar GKB, síðan ég hætti og aðstoðað klúbbinn eftir fremsta megni. Mætti eiginlega segja að ég hafi aldrei alveg hætt hérna. Mér þykir ofboðslega vænt um fólkið í kringum klúbbinn og völlinn sjálfan.“ 

Hyggstu breyta einhverju í rekstri klúbbsins? 
„Einna helst vil ég reyna að fá fleiri hópa til okkar, stóra sem smáa. Erum með frábært klúbbhús og leyfi mér að fullyrða með einn besta vert landsins, sem sér um eldhúsið hérna á Kiðjabergi. Við ætlum okkur að vera vel undirbún fyrir líklega stærsta golfsumarið til þessa. Vonandi að veðrið verði okkur hliðhollt í sumar“

Hverjir eru helstu kostir Kiðjabergsvallar, að þínu mati? 
„Helstu kostirnir finnst mér vera gríðarlegur fjölbreytileiki brauta og stórkostlegt útsýni á nánast öllum teigum. Held að allir sem spila hér í fyrsta skipti muni hverja einustu braut eftir hringinn. Sjálfur man ég vel þann dag þegar ég spilaði hérna fyrst. Upplifunin að ganga niður 13. brautina (sem þá var 4-hola) í fyrsta skipti, er mér enn í fersku minni. Alltaf minnisstætt líka þegar ég hitti tvo Dani sem voru að spila völlinn. Þeir tjáðu mér að þeir væru búnir að spila golf í 30 ár út um allann heim og sögðu að þetta væri flottasti golfvöllur sem þeir höfðu spilað. Rakst síðan á þá seinna sama daginn þar sem þeir ákváðu að taka aðrar 18 holur!.“

Eftir Valur Jónatansson 17 May, 2024
Kiðjabergsvöllur opnar fyrir alla kylfinga 18. maí og golfbílar leyfðir
Eftir Valur Jónatansson 13 May, 2024
"Margar hendur vinna létt verk!"
Eftir Valur Jónatansson 10 May, 2024
Kiðjabergsvöllur opnar fyrir félagsmenn!
Eftir Börkur Arnvidarson 16 Apr, 2024
Vertu með okkur í sumar!
04 Jan, 2024
Innheimta á félagsgjöldum GKB 2024
22 Dec, 2023
Jólakveðja frá Golfklúbbi Kiðjabergs
Eftir Valur Jónatansson 18 Dec, 2023
Guðmundur endurkjörinn formaður GKB. Félagsmönnum fjölgaði á árinu og eru nú 431 talsins
Eftir Valur Jónatansson 14 Dec, 2023
Framtíð Kiðjabergsvallar - Fjárfestingar í vökvunarkerfi, skemmu og vélarbúnaði
04 Dec, 2023
Aðalfundur GKB haldinn 18. desember í húsnæði Samtaka Iðnaðarins
Eftir Valur Jónatansson 22 Nov, 2023
Gefðu golfhring í jólapakkann
Fleiri færslur
Share by: