Gull 24 Open 2026

Valur Jónatansson • 21. júní 2026

Nú er um að gera að skrá sig í skemmtilegasta mót ársins!

Skráning er nú í fullum gangi fyrir GULL 24 Open, einn magnaðasta golfviðburð ársins, þar sem ræst er út viðstöðulaust í 24 tíma. Keppni hefst á Kiðjabergsvelli kl. 14 föstudaginn 26. júní og lýkur sólarhring síðar. Þetta er fjórða árið sem það er haldið og hafa flestir keppendur verið um 400 talsins.


Það er fátt sem jafn­ast á við að leika golf á þess­um árs­tíma þegar dags­birtu nýtur við all­an sól­ar­hring­inn. Kiðjabergs­völl­ur er að margra mati með eitt fal­leg­asta vall­ar­stæði lands­ins og því upplagt tækifæri fyrir þá sem ekki hafa leikið völlinn að panta sér rástíma í mótinu, þegar hentar.


Leikfyrirkomulag er einstaklingspunktakeppni með forgjöf. Hámarksforgjöf hjá körlum er 28 og 32 hjá

konum. Við skráningu á GolfBox er hægt að skrá 4 leikmenn samtímis á rástíma. Leikmenn eru skráðir með félagsnúmeri þannig að þau þurfa að vera tiltæk (t.d. 12-3456). Sá sem skráir leikmenn þarf að greiða fyrir alla. Verð í mótið er 9.000 kr. og greiðist við skráningu.


Flokkar
Karlar +8 til 15,9 í forgjöf
Karlar 16 og hærra í forgjöf (hámark 24 í leikforgjöf)
Konur +8 til 19,9 í forgjöf
Konur 20 og hærra í forgjöf (hámark 32 í leikforgjöf)

Nándarverðlaun á öllum par 3 holum, sérstök holu í höggi verðlaun, lengsta pútt ofan í holu á 18. holu o.fl.


Karlar að verða 14 ára að aldri og yngri auk karla 70 ára og eldri leika af rauðum teigum, nema að þeir ætli að taka þátt í höggleik án forgjafar. Þá er  leikið af gulum teigum. Allar konur spila af rauðum teigum.


Fyrirspurnir varðandi golfbíla sendið póst á gkb@gkb.is


Eins og áður segir verður ræst út stanslaust í 24 tíma. Frá 14:00 föstudaginn 26. júní til kl 13:50 laugardaginn 27. júní.


Nú þegar hafa um 100 manns skráð sig, þar af á annan tug útlendinga. Við hvetjum félagsmenn sem aðra að taka þátt í þessu skemmtilega móti.


Skráning er í fullum gangi HÉR.

Eftir Börkur Arnvidarson 15. september 2026
J afntefli í Bændaglímu GKB 2026
Eftir Valur Benedikt Jónatansson 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik
Eftir Valur Jónatansson 22. ágúst 2026
Kvennasveit GKB í 6. sæti í 2. deild 50+
Eftir Valur Jónatansson 18. ágúst 2026
Karlasveitin í 5. sæti í 2. deild
Eftir Valur Jónatansson 11. ágúst 2026
GKB konur í 4. sæti í 65 ára og eldri