Meistaramót GKB 2026

Valur Jónatansson • 29. júní 2026

Meistaramótsdagar framundan!

Meistaramót Golfklúbbs Kiðjabergs árið 2026 verður haldið dagana 2. til 4. júlí. Hægt er að velja um þriggja daga mót og tveggja daga punktakeppni. Í þriggja daga mótinu, sem hefst a fimmtudag, er keppt í fjórum flokkum karla og tveimur flokkum kvenna.  Opnu flokkarnir (Opinn flokkur, Öldungar og Unglingar 14 ára og yngri) verða leiknir 3. og 4. júlí.


Forgjafarflokkar og leikfyrirkomulag er eftirfarandi:
Þriggja daga Meistaramót (54 holur)

Meistaraflokkur karla (forgjöf + til og með 7,5). Höggleikur án forgjafar, hvítir teigar.
1. flokkur karla: 7,0 til 13,9 - Höggleikur án forgjafar
2. flokkur karla: 14,0 til 20,4 - Höggleikur án forgjafar
3. flokkur karla: 20,5 til 54 (36 hámarks vallarforgjöf) - Punktakeppni m. forgjöf
1. flokkur kvenna: +8 til 20,4 - Höggleikur
2. flokkur kvenna: 20,5 til 54 (36 hámarks vallarforgjöf) - Punktakeppni m. forgjöf


Tveggja daga Meistaramót - Opnir flokkar (36 holur)

Opinn flokkur karla - Punktakeppni m. forgjöf

Opinn flokkur kvenna - Punktakeppni m. forgjöf
Öldungar - Punktakeppni m. forgjöf
Unglingar 14 ára og yngri, stúlkur og drengir  - Punktakeppni m. forgjöf


Veitt verða verðlaun í öllum flokkum fyrir 3 efstu sætin. Sameiginleg nándarverðlaun fyrir Meistamótið eru á öllum par-3 holum á laugardaginn fyrir alla flokka.

Skráning er opin í Golfbox. Einnig er mögulegt að skrá sig í þriggja daga eða tveggja daga mótið með því að ýta á annanhvorn takkann fyrir neðan.


Skráning í þriggja daga Meistaramót


Skráning í tveggja daga Meistaramót.


Lokahóf á laugardaginn
Glæsilegt lokahóf Meitaramótsins verður haldið laugardagskvöldið 4. júlí. Borðhald hefst um kl. 19 og má gera ráð fyrir að verðlaunaafhending hefjist 19.45. Til að panta sæti þarf að senda póst á
rakelmatt@gkb.is eða hringja í síma 699-4969.
Hvetjum alla til að mæta, njóta góðra veiga og góðs félagsskaps með öðrum klúbbfélögum!


Eftir Börkur Arnvidarson • 24. september 2026
Haust á Kiðjabergsvelli - Staða vallar og golfskála
Eftir Börkur Arnvidarson • 15. september 2026
J afntefli í Bændaglímu GKB 2026
Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson • 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson • 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson • 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson • 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Kvennasveit GKB í 6. sæti í 2. deild 50+
Eftir Valur Jónatansson • 18. ágúst 2026
Karlasveitin í 5. sæti í 2. deild