Góð þátttaka í GULL 24 Open

Valur Jónatansson • 30. júní 2026

Andri Jón vann höggleikinn í Gull 24 Open

260 keppendur mættu til leiks í GULL 24 Open, sem fram fór á Kiðjabergsvelli um síðustu helgi. Ræst var út viðstöðulaust í 24 tíma, eða einn sólarhring. Rúmlega 20 erlendir kylfingar mættu og hafa þeir aldrei verið fleiri. Það skiptust á skin og skúrir meðan á mótinu stóð og voru sumir heppnari en aðrir með verður.


Fjórir kylfingar léku á 73 höggum, sem var besta skorið í höggleik.  Andri Jón Sigurbjörnsson úr GKB sigraði þar sem hann var með besta skorið á seinni níu.  Ragnar Helgi Ragnarsson úr GG og Sölvi Svavarsson úr GOS fengu flesta punkta í karlaflokki og Guðrún Ýr Birgisdóttir úr GR og Kristín Nielsen úr GKB léku best kvenna í punktakeppni.


Keppt var í fimm flokkum, fjórum í punktakeppni og einum í höggleik. Helstu úrslit voru sem hér segir:


Efstu menn í höggleik:

1 Andri Jón Sigurbjörnsson, Golfklúbbur Kiðjabergs,  73

2 Jón Bjargmundsson, Golfklúbbur Kiðjabergs, 73

3 Árni Evert Leósson, Golfklúbbur Selfoss. 73

4 Ævar Pétursson, Golfklúbbur Suðurnesja 73


Punktakeppni, karlar +8 til 15,9 í forgjöf:

1 Jón Bjargmundsson, GKB, 41

2  Björn Atli Rúnarsson, GKB, 39

3 Stefán Torrini, Golfklúbbur Álftaness, 39


Karlar 16 og hærra í forgjöf (hámark 24 í leikforgjöf):

1 Ragnar Helgi Ragnarsson, Golfklúbbur Grindavíkur, 43

2 Sölvi Svavarsson, Golfklúbbur Selfoss, 43

3 Jón Þór Sigurðsson, Golfklúbbur Reykjavíkur. 40


Konur +8 til 19,9 í forgjöf

1 Guðrún Ýr Birgisdóttir, Golfklúbbur Reykjavíkur, 36

2 Helga Guðmundsdóttir, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, 32

3 María Björk Pálsdóttir, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, 31


Konur 20 og hærra í forgjöf (hámark 32 í leikforgjöf)

1 Kristín Nielsen, Golfklúbbur Kiðjabergs, 36

2 Audronė Butkevičienė, The V Golf Club, 35

3 Kristín B Eyjólfsdóttir, Golfklúbbur Kiðjabergs, 34


Nándarverðlaun:

3. Hola: Kristín Elfa Axelsdóttir - 1,07m

7. Hola: Sveinn Gunnar Björnsson - 2,01m

12. Hola: Kristinn Daníel Kristinsson - 1,79m

16. Hola: Grímur Þórisson - 2,35m


Glæsilegir vinningar fyrir fimm efstu sætin í fjórum punktaflokkum:

1. sæti - Öxi 66°North Jakki & Gjafabréf f/ tvo m/ bíl

2. sæti - Helgafell 66 Norður Vesti og gjafabréf fyrir tvo á Kiðjabergsvöll

3. sæti - Gjafabréf í Laugarás Lagoon fyrir tvo og hringur fyrir tvo á Kiðjabergsvöll

4. sæti - Gjafabréf í Golfskálinn - 15.000

5. sæti - 66 Norður Polo stuttermabolur


Einnig eru veitt verðlaun fyrir besta skor:

Besta skor -  Gjafabréf í Golfskálinn - 20.000 og hringur fyrir tvo á Kiðjabergsvöll

ATH. Ekki er mögulegt að vinna til verðlauna í fleiri en einum flokki.

Nándarverðlaun!

10 þúsund króna gjafabréf hjá Mini Garðinum og rúta af Egils Gull.  


Við þökkum öllum sem þátt tóku í mótinu og hlökkum til að sjá ykkur aftur á Kiðjabergsvelli. Hægt er að vitja um vinninga í golfskálanum Kiðjabergi.


HÉR MÁ SJÁ HEILDARÚRSLIT.


Hér fyrir neðan má sjá mynd af sigurvegara mótsins, Andra Jóni Sigurbjörnssyni.

Eftir Börkur Arnvidarson • 24. september 2026
Haust á Kiðjabergsvelli - Staða vallar og golfskála
Eftir Börkur Arnvidarson • 15. september 2026
J afntefli í Bændaglímu GKB 2026
Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson • 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson • 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson • 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson • 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Kvennasveit GKB í 6. sæti í 2. deild 50+
Eftir Valur Jónatansson • 18. ágúst 2026
Karlasveitin í 5. sæti í 2. deild