Íslandsmót eldri kylfinga!

Valur Benedikt Jónatansson • 1. júlí 2026

Skráning hafin í Íslandsmót eldri kylfinga

Íslandsmót eldri kylfinga fer fram að þessu sinni á Kiðjabergsvelli dagana 16.-18. júlí. Golfsamband Íslands er framkvæmdaraðili mótsins. Skráning í mótið er í fullum gangi, en síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 9. júlí. Hámarksfjöldi keppenda er 150.


Mótið hefur lengi verið einn skemmtilegasti viðburður ársins. Leikinn er 54 holu höggleikur um Íslandsmeistaratitla í flokkum 50+ og 65+ karla og kvenna. Eftir 36 holu leik skal keppendum fækkað þannig að þau 70% keppenda sem eru með besta skor í hverjum flokki halda áfram keppni. Ef keppendur eru á sama skori og sá sem er með lakastan árangur þeirra sem halda áfram skulu þeir báðir/allir halda áfram. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um Íslandsmót í golfi í flokkum eldri kylfinga og móta- og keppendareglum GSÍ. 



Keppt er í eftirtöldum flokkum:       

Öldungaflokkur karla 50 ára og eldri – Hámarksforgjöf 18,0 - Hvítir teigar·  

Öldungaflokkur kvenna 50 ára og eldri – Hámarksforgjöf 26,0 - Bláir teigar       

Öldungaflokkur karla 65 ára og eldri – Hámarksforgjöf 22,0 - Gulir teigar        

Öldungaflokkur kvenna 65 ára og eldri – Hámarksforgjöf 29,0 - Rauðir teigar 

(Í flokkum 65 ára og eldri er notkun golfbíla heimiluð).


Æfingahringur

Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi, en nauðsynlegt er að hafa greitt mótsgjald til að mega leika æfingahringinn. Formlegir æfingadagar eru 13., 14. og 15. júlí, vinsamlegast hafið samband við gkb@gkb.is til að bóka rástíma.


Rástímar og ráshópar

Rástímar verða birtir í GolfBox kl. 12 á þriðjudeginum fyrir mót. Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað út eftir forgjöf en alla aðra daga verður raðað út eftir skori. 


1. hringur, fimmtudagur: Rástímar frá klukkan 08:00

Rásröð: Konur 65+, Konur 50+, Karlar 50+, Karlar 65+


2. hringur, föstudagur: Rástímar frá klukkan 08:00

Rásröð: Karlar 50+, Karlar 65+, Konur 65+, Konur 50+


3. hringur, laugardagur: Rástímar frá klukkan 08:00

Rásröð: Karlar 65+, Konur 65+, Konur 50+, Karlar 50+


Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum án forgjafar.

1. sæti: 40.000,- kr. Gjafakort

2. sæti: 30.000,- kr. Gjafakort

3. sæti: 15.000,- kr. Gjafakort


Lokahóf fer fram á laugardagskvöldi í umsjá GKB og verða verðlaun afhent þar. Húsið opnar kl. 19 en borðhald og verðlaunaafhending hefst um kl. 19.30.


HÉR er hægt að skrá sig í mótið.


Eftir Valur Jónatansson 11. ágúst 2026
GKB konur í 4. sæti í 65 ára og eldri
Eftir Valur Jónatansson 11. ágúst 2026
GKB í 5. sæti í sveitakeppni öldunga!
Eftir Valur Jónatansson 10. ágúst 2026
Prýðisfólk sigraði í Hjóna- og paramótinu
Eftir Valur Jónatansson 7. ágúst 2026
Yfir 100 keppendur í LEK móti á Kiðjabergi
Eftir Börkur Arnvidarson 6. ágúst 2026
Lokun golfbílaumferðar
Eftir Valur Jónatansson 2. ágúst 2026
Uppselt í mótið og einn náði draumahögginu!
Eftir Valur Jónatansson 31. júlí 2026
Skapar golfupplifun sem hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu
Eftir Valur Jónatansson 28. júlí 2026
Uppselt í næstu þrjú mót á Kiðjabergi
Eftir Valur Jónatansson 23. júlí 2026
Pilsaþytur á Kiðjabergi 31. júlí
Eftir Valur Jónatansson 18. júlí 2026
Þórdís Í slandsmeistari e ldri kylfinga í 11. sinn!