Héraðsdómaranámskeið

Valur Jónatansson • 6. febrúar 2026

Frítt dómaranámskeiðið fyrir félagsmenn

Félögum í GKB, eins og í öðrum golfklúbbum, stendur til boða að sækja héraðsdómaranámskeið í febrúar, sér að kostnaðalausu. Þetta er kærkomið tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á að starfa fyrir klúbbinn á sviði mótahalds og dómgæslu.


Dómaranefnd GSÍ stendur fyrir námskeiðinu í febrúar mánuði eins og hefur verið gert síðustu ár. Fyrirlestrar verða 17., 19., 23. og 25. febrúar 2026, kl. 19:30 – 22:00. Fyrirlestrar eru sendir út á netinu og einnig teknir upp þannig að það er hægt að horfa þá aftur eða eftir hentugleika.

Námskeiðið er frítt fyrir meðlimi í golfklúbbum innan GSÍ.

Ekki er skilyrði að fara í prófið þó að fólk sæki námskeiðið. Prófið er rafrænt próf tekið á netinu þannig að það er engin fyrirstaða fyrir aðila á landsbyggðinni að sitja námskeiðið og taka prófið.


Það er ekki skilyrði að hafa setið námskeiðið til að geta tekið prófið. Þó er krafa að skrá sig á námskeiðið svo hægt sé að senda viðkomandi upplýsingar um námskeiðsefni og tengla á prófið. Ætlast er til þess að þeir sem sitja héraðsdómaranámskeiðið byrji á því að undirbúa sig með því að fara í gegnum 1.stigs golfregluskóla R&A.


Þátttöku í héraðsdómaranámskeiði er hægt að tilkynna með því að skrá sig hér Skráning á námskeið eða senda tölvupóst á domaranefnd@golf.is með (kennitölu, nafni og heiti golfklúbbs).


Eftir Börkur Arnvidarson • 24. september 2026
Haust á Kiðjabergsvelli - Staða vallar og golfskála
Eftir Börkur Arnvidarson • 15. september 2026
J afntefli í Bændaglímu GKB 2026
Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson • 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson • 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson • 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson • 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Kvennasveit GKB í 6. sæti í 2. deild 50+
Eftir Valur Jónatansson • 18. ágúst 2026
Karlasveitin í 5. sæti í 2. deild