Hjóna og parakeppni á Kiðjabergsvelli

Valur Jónatansson • 10. ágúst 2026

Prýðisfólk sigraði í Hjóna- og paramótinu

Hið árlega hjóna- og paramót Golfsögu-Verdi fór fram á Kiðjabergsvelli laugardainn 8. ágúst. Upphaflega átti mótið að vera tveggja daga mót, föstudag og laugardag, en vegna veðurs varð að aflýsa fyrri deginum og leikið Texas scramble á laugardeginum. Uppselt var í mótið og komust færri að en vildu.


Liðið sem kallaði sig Prýðisfólk sigraði, en fyrir það léku þau Guðbjörg Elín Ragnarsdóttir og Bragi Þorsteinn Bragason. Þau lék á 10 höggum undir pari. SveinBirna hafnaði í öðru sæti, tveimur höggum á eftir, í liðinu voru Birna Antonsdóttir og Sveinbjörn Brandsson. Stórikampur varð síðan í þriðja sæti á sama skori.


Veitt voru verðlaun fyrir efstu sætin og eins voru nándarverðlaun á öllum par-3 holum vallarins. Þá voru teiggjafir til allra keppenda og síðan lokahóf í golfskálanum á laugardagskvöldið og þar var einnig dregið úr skorkortum.


Efstu lið:

1. Prýðisfólk

Guðbjörg Elín Ragnarsdóttir, Bragi Þorsteinn Bragason 46 punktar

2. SveinBirna

Birna Antonsdóttir, Sveinbjörn Brandsson 44

3. Stórikambur

Jörgen Albrechtsen, Sigrún Ragnarsdóttir 44

4. Áslaug og Sigurður

Áslaug Sigurðardóttir, Sigurður Ríkharð Árnason 44

5. Langbest

Helena R Guðjónsdóttir, Ingólfur Karlsson 42

6. Sigursteinar

Berglind J Steinþórsdóttir, Hermann B Sigursteinsson 42


Vinningar voru frá Golfsögu-Verdi, Bláa lóninu, Fontana, Hótel Örk, Skógarböðunum, Laugarás Lagoon og Reykjaböðunum.


Lokastaðan





Eftir Börkur Arnvidarson • 24. september 2026
Haust á Kiðjabergsvelli - Staða vallar og golfskála
Eftir Börkur Arnvidarson • 15. september 2026
J afntefli í Bændaglímu GKB 2026
Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson • 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson • 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson • 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson • 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Kvennasveit GKB í 6. sæti í 2. deild 50+
Eftir Valur Jónatansson • 18. ágúst 2026
Karlasveitin í 5. sæti í 2. deild