Gull Styrktarmót GKB

Valur Jónatansson • 2. ágúst 2026

Uppselt í mótið og einn náði draumahögginu!

Gull Styrktarmót GKB - Texas Scramble fór fram á Kiðjabergsvelli í gær, laugardaginn 1. ágúst. Uppselt var í mótið, 176 kylfingar, eða 88 lið. Það var gott veður og sólríkt allan daginn. Smá vindasamt inná milli en flottur dagur í heildina og einn keppenda náði draumahögginu!


Skor keppenda var yfirleitt gott og fór svo að liðið, sem bar nafnið Par-Tí, sigraði. Fyrir liðið léku þau Heiðrún Harpa Ríharðsdóttir og Hrafnkell Helgi Helgason, en þau komu inn á 13 höggum undir pari.

Í öðru sæti kom Fuglafélagið einu höggi á eftir og H20 í þriðja sæti 11 höggum undir pari.


Hjörtur Methúsalemsson úr GR (sjá mynd) náði draumahöggi allra kylfinga er hann fór holu í  höggi á 12. braut vallarsins í mótinu. Hann er þar með kominn í Einherjaklúbbinn, sem er líklega eftirsóttasti klúbbur landsins að komast í.

Annars voru úrslit sem hér segir:

1. sæti – Par-Tí ((Leikfg. liðs: 16)

Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir (FGJ.: 28,7)

Hrafnkell Helgi Helgason (FGJ.: 16,5)


2. sæti – FuglaFélagið - (Leikfg. liðs: 9)

Óli Pétur Friðþjófsson (FGJ.: 16,3)

Sigurður Davíð Stefánsson (FGJ.: 10,0) 


3. sæti – H2O - (Leikfg. liðs: 9)

Oddur Stefánsson (FGJ.: 11,9)

Helena Kristín Brynjólfsdóttir (FGJ.: 13,4)



Nándarverðlaun:

3. braut - Lilja H. Stuludóttir – 2,59 m

7. braut - Ragnheiður K Guðmundsdóttir – 87 cm

12. braut - Hjörtur Methúsalemsson – 0,0 m (Hola í höggi!)

16. braut - Óli Pétur Friðþjófsson – 2,12


Keppendur sem unnu til verðlauna geta vitjað verðlauna sinna í golfskálanum Kiðjabergi.


LOKASTAÐAN


Á myndinni má sjá Hjört Methúsalemsson fagna draumahögginu.

Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 12. október 2026
Kiðjabergsvöllur lokar eftir gott golfsumar!
1. október 2026
Golfskálinn lokar – Kiðjabergsvöllur áfram opinn
Eftir Börkur Arnvidarson • 24. september 2026
Haust á Kiðjabergsvelli - Staða vallar og golfskála
Eftir Börkur Arnvidarson • 15. september 2026
J afntefli í Bændaglímu GKB 2026
Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson • 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson • 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson • 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson • 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik