Góð kynning á Kiðjabergi í MBL

Valur Jónatansson • 31. júlí 2026

Skapar golfupplifun sem hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu

Morgunblaðið var með kynningarblað um golf á Íslandi föstudaginn 31. júlí. Þar var m.a. grein um Kiðjabergsvöll og viðtal við Guðmund Ásgeirsson, formann GKB. Þar segir m.a. að völlurinn sé umkringdur einstakri náttúrufegurð og var valinn besti golfvöllur Íslands á World Golf Awards árin 2024 og 2025 og hefur nú hlotið tilnefningu þriðja árið í röð. Í haust kemur svo í ljós hvort orðatiltækið „Allt er þegar þrennter“ eigi einnig við um Kiðjabergsvöll.


"Kylfingar hvaðanæva úr heiminum leggja leið sína í Kiðjaberg þar sem stórbrotin náttúra, fyrsta flokks aðstaða og metnaður hafa skapað golfupplifun sem hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu", segir í greininni.


Guðmundar formaður segir frá því hvað gerir völlinn svona eftirsóttan og hvaða þættir liggja að baki þessum glæsilega árangri. "Það er samspil stórbrotinnar náttúru, gæða vallarins og öflugs starfsfólks sem hefur skapað Kiðjabergsvellinum það orðspor sem hann nýtur í dag."


"Upplifunin er einstök. Völlurinn liggur með bökkum Hvítár sem rennur meðfram nokkrum brautum hans og útsýnið yfir fjallahringinn er stórkostlegt. Á þrettándu braut slær maður nánast niður að ánni og á fleiri brautum fylgir áin kylfingum stóran hluta hringsins. Það er óhætt að segja að umhverfið skipti gríðarlega miklu máli fyrir þá sem koma hingað að spila," segir Guðmundur við MBL.


Guðmundur segir að árangurinn sé engin tilviljun. „Við erum mjög heppin með öflugt starfsfólk, sterka stjórn og ómetanlegan hóp sjálfboðaliða. Jafnframt leggjum við mikla áherslu á að halda vellinum í sem bestu ástandi. Flatirnar skipta kylfinga auðvitað miklu máli og okkur hefur tekist að halda þeim í afar góðu standi

undanfarin ár.“


Guðmundur bendir á að það sé ekki sjálfgefið fyrir golfklúbb af þessari stærð að halda uppi jafn háum gæðum. „Við erum aðeins með um 420 félagsmenn, á meðan sumir golfklúbbar á höfuðborgarsvæðinu eru með nokkur þúsund. Þess vegna þurfum við að fara vel með fjármunina og framkvæmdir taka sinn tíma.

Metnaðurinn er hins vegar alltaf sá sami.“


Eftir Valur Benedikt Jónatansson 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik
Eftir Valur Jónatansson 22. ágúst 2026
Kvennasveit GKB í 6. sæti í 2. deild 50+
Eftir Valur Jónatansson 18. ágúst 2026
Karlasveitin í 5. sæti í 2. deild
Eftir Valur Jónatansson 11. ágúst 2026
GKB konur í 4. sæti í 65 ára og eldri
Eftir Valur Jónatansson 11. ágúst 2026
GKB í 5. sæti í sveitakeppni öldunga!