Mikill áhugi á mótum í Kiðjabergi

Valur Jónatansson • 28. júlí 2026

Uppselt í næstu þrjú mót á Kiðjabergi

Áhuginn á golfi hér á landi hefur líklega aldrei verið meiri en nú og kemur það greinilega fram í áhuga kylfinga á mótum á Kiðjabergsvelli. Nú þegar er uppselt í næstu þrjú mót og búið að setja upp biðlista á þau öll. Þetta hefur aldrei gerst áður.


Mótin sem framundan eru á næstunni eru:

1. Pilsaþytur sem er Texas scramble kvennamót og fer fram föstudaginn 31. júlí (72 keppendur).

2. Gull Styrktarmót GKB, sem er Texas scramble mót og fer fram laugardaginn 1. ágúst (174 keppendur).

3. Hjóna og parakeppni Golfsögu og Verdi Travel, sem er tveggja daga mót, og fer fram 7. og 8. ágúst (88 keppendur).


Völlurinn er í sínu besta formi um þessar mundir og ekki skemmir að verðurspáin er góð.


Þeir kylfingar sem hafa áhuga á að skrá sig á biðlista í þessum mótum geta sent póst á gkb@gkb.is






Eftir Valur Benedikt Jónatansson 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik
Eftir Valur Jónatansson 22. ágúst 2026
Kvennasveit GKB í 6. sæti í 2. deild 50+
Eftir Valur Jónatansson 18. ágúst 2026
Karlasveitin í 5. sæti í 2. deild
Eftir Valur Jónatansson 11. ágúst 2026
GKB konur í 4. sæti í 65 ára og eldri
Eftir Valur Jónatansson 11. ágúst 2026
GKB í 5. sæti í sveitakeppni öldunga!