Pilsaþytur 2026

Valur Jónatansson • 23. júlí 2026

Pilsaþytur á Kiðjabergi 31. júlí

Föstudaginn 31. júlí nk. verður Pilsaþytur á Kiðjabergi. Mótið er innanfélagsmót en klúbbfélagar geta boðið gestum með sér. Keppendur klæðist því litríkasta sem þeir eiga. Þetta verður sannkallað "Gleðimót" með stóru G-i.  Verðlaun eru í boði BYGG, byggingafélags Gylfa og Gunnars sem eru styrktaraðilar mótsins.


Mótið er 9 holu Texas Scramble þar sem tvær konur eru saman í liði. Báðar slá, valið er boltinn sem er betri og báðar spila frá þeim stað. Mæting klukkan 17:00, ræst verður út stundvíslega klukkan 18.00.


Hámarksleikforgjöf er 36 og reiknast forgjöf hvers liðs þannig: samanlögð vallarforgjöf liðsins deilt með 4 en leikforgjöf liðsins er þó aldrei hærri en forgjöf þeirrar sem er með lægri forgjöfina.


Skráning í mótið fer fram í Golfboxi. 


GKB konur eru hvattar til að bjóða með sér vinkonu í mótið. Sköpum skemmtilega stemmingu á Kiðjabergi. Verð aðeins kr. 3.000 kr. ​Aldurtakmark þátttakenda er 16 ár.


Muna að gefa liðinu NAFN þegar það kemur upp.

  1. Byrjið á að fynna mótið og ýta á skrá ykkur
  2. Bætið við vini sem ekki er aðili í GSÍ með því að "bæta við leikmanni" og velja "UNION" „annað samband handvirkur innsláttur"
  3. Fylla út allar upplýsingar sem krafist er:
    Nafn, land, fæðingardag og ár, síðan er það forgjöf, klúbbur er annað og réttindi er áhugamaður. Einnig þarf að skrá upplýsingar um tengilið, þ.e. síma og netfang.
    Í lokin ýta á BÆTA VIÐ


Verðlaun eru veitt til þriggja efstu liðanna í mótinu. Þær konur sem slá inná flöt á þriðju og sjöundu fá glaðning. Í boði verður dýrindis súpa að hætti Rakelar að leik loknum. Panta þarf súpuna fyrirfram í Golfboxinu og kostar 4.000 kr.


Óskir um golfbíl sendast á gkb@gkb.is . Verð fyrir golfbíl á níu holur er 4.000 kr. Til að vera viss um að fá golfbíl þarf að fá staðfestingu frá golfklúbbnum.


Skráningu í mótið lýkur 29. júlí kl. 18.00.

ATH. Ekki er hægt að fá endurgreitt mótsgjald ef afbókun á sér stað innan 24klst í fyrsta rástíma


Skrá sig HÉR.


Eftir Börkur Arnvidarson 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik
Eftir Valur Jónatansson 22. ágúst 2026
Kvennasveit GKB í 6. sæti í 2. deild 50+
Eftir Valur Jónatansson 18. ágúst 2026
Karlasveitin í 5. sæti í 2. deild
Eftir Valur Jónatansson 11. ágúst 2026
GKB konur í 4. sæti í 65 ára og eldri
Eftir Valur Jónatansson 11. ágúst 2026
GKB í 5. sæti í sveitakeppni öldunga!
Eftir Valur Jónatansson 10. ágúst 2026
Prýðisfólk sigraði í Hjóna- og paramótinu
Eftir Valur Jónatansson 7. ágúst 2026
Yfir 100 keppendur í LEK móti á Kiðjabergi
Eftir Börkur Arnvidarson 6. ágúst 2026
Lokun golfbílaumferðar