Spennandi Íslandsmót eldri kylfinga á Kiðjabergsvelli
Þórdís Íslandsmeistari eldri kylfinga í 11. sinn!

Íslandsmóti eldri kylfinga lauk í blíðskaparveðri á Kiðjabergsvelli í dag. Mótið fór fram dagana 16.-18. júlí og voru leiknar 54 holur í fjórum flokkum, 50 ára og eldri og 65 ára og eldri karla og kvenna.
Þórdís Geirsdóttir, Sigurbjörn Þorgeirsson, Guðrún Garðars og Gauti Grétarsson fögnuðu Íslandsmeistaratitlum eldri kylfinga 2026 eftir skemmtilegt og spennandi mót. Þess má geta að Þórdís var að vinna titilinn í 11. skipti.
Þórdís vann með þriggja högga mun
Þórdís Geirsdóttir úr Golfklúbbnum Keili varð Íslandsmeistari í flokki 50 ára og eldri og varði því titil sinn frá í fyrra. Hún lék hringina þrjá á 81, 86 og 82 höggum og lauk leik á 249 höggum, 36 höggum yfir pari. Þórdís var með fimm högga forskot fyrir lokahringinn og hélt forystunni sinni þrátt fyrir góða spilamennsku Ragnheiðar Sigurðardóttur í dag. Ragnheiður átti besta hring dagsins í flokknum, en hún lék á 80 höggum og minnkaði forskotið niður í þrjú högg.
Helga Þorvaldsdóttir lék lokahringinn á 83 höggum og tryggði sér þriðja sætið á 259 höggum. Lilja Guðríður Karlsdóttir varð fjórða og Sigríður Kristinsdóttir fimmta.
Háspenna í flokki 50 ára karla
Mikil spenna var í flokki 50 ára og eldri karla þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á lokaholunni þar sem Sigurbjörn Þorgeirsson tryggði sér sigurinn með glæsilegum fugli. Hann lék á 228 höggum, 15 höggum yfir pari, og varði einnig titil sinn. Jón Karlsson og Jón Snorri Halldórsson enduðu jafnir í öðru sæti á 230 höggum. Árni Páll Hansson varð fjórði á 232 höggum og Frans Páll Sigurðsson fimmti, aðeins höggi þar á eftir.
Guðrún hafði betur gegn Steinunni
Guðrún Garðars úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð Íslandsmeistari í flokki 65 ára og eldri. Hún og Steinunn Sæmundsdóttir voru jafnar fyrir lokahringinn eftir að hafa báðar leikið fyrstu tvo hringina á 84 höggum. Guðrún lék lokahringinn á 82 höggum og lauk mótinu á 250 höggum, 37 höggum yfir pari. Steinunn lék lokahringinn á 85 höggum og varð önnur, þremur höggum á eftir Guðrúnu.
María Málfríður Guðnadóttir, ríkjandi meistari flokksins, átti einnig góðan lokahring upp á 82 högg og varð þriðja á 257 höggum. Ágústa Dúa Jónsdóttir varð fjórða og Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir fimmta.
Gauti með yfirburði í 65 ára flokki
Gauti Grétarsson úr Nesklúbbnum tryggði sér öruggan sigur í flokki 65 ára og eldri. Hann lék hringina á 78, 74 og 75 höggum og lauk mótinu á 227 höggum, 14 höggum yfir pari.
Gauti var með níu högga forskot fyrir lokahringinn og bætti höggum við það á lokadeginum. Hann vann að lokum með þrettán högga mun.
Kristján V. Kristjánsson úr Golfklúbbnum Keili varð annar á 240 höggum eftir tvo hringi í röð á 77 höggum. Brynjar Harðarson úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð þriðji, Hlöðver Sigurgeir Guðnason fjórði og Kristinn Þórir Kristjánsson fimmti.
Myndir/Valur Jónatansson













