Nýtt forgjafarkerfi tekur gildi 1. mars

Halldor Stefansson • jan. 16, 2020

Í ár munu sex forgjafarkerfi sameinast í eitt fyrir allan heiminn. Nýju reglurnar gera kylfingum fært að nota sína forgjöf á hvaða golfvelli sem er í heiminum og keppa eða leika golfhring sér til skemmtunar með hverjum sem er á heiðarlegum og jöfnum forsendum. Reglurnar kallast á ensku World Handicap System (WHS) og munu taka gildi hér á landi 1. mars næstkomandi.

Forgjöfin þín verður meðaltal 8 lægstu skormismuna síðustu 20 forgjafarhringja. Hægt verður að skoða forgjöfina í tölvukerfi GSÍ frá 1. mars 2020. Í nýju reglunum eru engir forgjafarflokkar eins og kylfingar eru vanir. Sem þýðir líka að nú geta allir skráð inn forgjafarhringi eftir 9 holu leik, 12 holu eða meira. Ekki þarf að tilkynna fyrirfram. Ekki þarf að tilkynna sérstaklega í tölvukerfinu að leikinn hringur gildi til forgjafarútreiknings. Hægt verður að skrá alla hringi eftirá til forgjafarútreiknings.

Skor er gilt til forgjafarútreiknings ef hringur hefur verið leikinn samkvæmt golfreglum og viðurkenndum leikformum. Óbreytt verður að hámarks forgjöf sem kylfingur getur fengið er 54.0. Forgjafarreglurnar eru frábrugðnar golfreglum að því leyti að þeim er að mestu leyti stjórnað af tölvukerfi. Þess vegna þarftu ekki að læra smáatriðin heldur treysta þeim reiknireglum í tölvukerfinu sem reikna út þína forgjöf. 

Þegar nýtt forgjafarkerfi tekur gildi 1. mars þá skráir þú þig inn í tölvukerfi GSÍ og sérð hver ný endurreiknuð forgjöf þín er samkvæmt forgjafarreglum 2020, sem gilda fyrir allan heiminn.

Eftir Valur Jónatansson 17 May, 2024
Kiðjabergsvöllur opnar fyrir alla kylfinga 18. maí og golfbílar leyfðir
Eftir Valur Jónatansson 13 May, 2024
"Margar hendur vinna létt verk!"
Eftir Valur Jónatansson 10 May, 2024
Kiðjabergsvöllur opnar fyrir félagsmenn!
Eftir Börkur Arnvidarson 16 Apr, 2024
Vertu með okkur í sumar!
04 Jan, 2024
Innheimta á félagsgjöldum GKB 2024
22 Dec, 2023
Jólakveðja frá Golfklúbbi Kiðjabergs
Eftir Valur Jónatansson 18 Dec, 2023
Guðmundur endurkjörinn formaður GKB. Félagsmönnum fjölgaði á árinu og eru nú 431 talsins
Eftir Valur Jónatansson 14 Dec, 2023
Framtíð Kiðjabergsvallar - Fjárfestingar í vökvunarkerfi, skemmu og vélarbúnaði
04 Dec, 2023
Aðalfundur GKB haldinn 18. desember í húsnæði Samtaka Iðnaðarins
Eftir Valur Jónatansson 22 Nov, 2023
Gefðu golfhring í jólapakkann
Fleiri færslur
Share by: