Uppselt í Stóra 66° Norður Texas Scramble mótið!

Valur Jónatansson • 6. júní 2026

Yin & Yang á 17 höggum undir pari!

Stóra 66° Norður Texas Scramble mótið fór fram í ágætu veðri á Kiðjabergsvelli í dag, laugardaginn 6. júní. Uppselt var í mótið að venju og mættu 172 keppendur, eða 86 lið. Mótið er eitt það vinsælasta á vellinum ár hvert og yfirleitt komast færri að en vilja.


Skorið var ótrúlega gott að þessu sinni og nánst lygilegt. Sigurliðið, sem bar nafnið Yin & Yang, lék á 54 höggum, eða 17 höggum undir pari.  Líklega besta skor sem þetta árlega mót  hefur unnist á. Liðið skipuðu þeir Elvar Örn Rúnarsson og Viktor Óli Elvarsson úr Golfklúbbi Hveragerðis.


Sigurjónsson og Helgason höfnuðu í 2. sæti á 56 höggum nettó og Guðmundsson/Guðmundsdóttir í þriðja sæti á 57 höggum. Þess má geta að 17 efstu liðin voru á 10 höggum undir pari eða betra skori.


Leikfyrirkomulag var Texas Scramble, tveir saman í liði. Hámarks leikforgjöf karla 28 og kvenna 32. Glæsileg verðlaun voru í boði frá 66 Norður fyrir efstu þrjú sætin. og nándarverðlaun frá Minigarðinum á öllum par 3 holum vallarins.


Nándarverðlaun:

3. hola - Bjarki Snær Halldórsson 2,19 m

7. hola - Ægir Snær Sigmarsson - 1,75 m

12. hola - Grétar Agnarsson - 0,56 m

16. hola -Guðjón Magnússon - 2,56 m


Hægt er að nálgast verðlaunin í golfskálanum Kiðjabergi. Við þökkum öllum keppendum fyrir komuna á Kiðjabergsvöll.

Heidarúrslit má sjá HÉR.


Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 12. október 2026
Kiðjabergsvöllur lokar eftir gott golfsumar!
1. október 2026
Golfskálinn lokar – Kiðjabergsvöllur áfram opinn
Eftir Börkur Arnvidarson • 24. september 2026
Haust á Kiðjabergsvelli - Staða vallar og golfskála
Eftir Börkur Arnvidarson • 15. september 2026
J afntefli í Bændaglímu GKB 2026
Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson • 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson • 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson • 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson • 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik