Úrslit úr GKB Grand Open 2026

Valur Jónatansson • 30. maí 2026

"Eilíf fergurð" kom, sá og sigraði!

Fyrsta opna mót ársins, GKB Grand Open, fór fram á Kiðjabergsvelli í dag, 30. maí. Leikfyrirkomulag var  betri bolti m/forgjöf þar sem betra skor liðsins taldi á holu.  Sigurvegarar urðu "Eilíf fergurð" sem kom inn á 8 höggum undir pari. Liðið skipuðu þeir Jón Árni Bragason úr GO og Garðar Snorri Guðmundsson úr GKG.


36 kylfingar (18 lið) tóku þátt og var ræst út á sama tíma á 9 brautum. Mótinu þurfti að fresta um eina vika þar sem maí mánuður var kaldur og hægði á vexti og frost var enn þá í brautum. Kalt var í veðri, eða rétt um 4-5 gráður. Svo byrjaði að rigna þegar leið á mótið sem gerði aðstæður enn krefjandi fyrir keppendur. Næsta mót á Kiðjabergi verður 6. júní en þá verður Stóra 66° North sem er Texas Scramble. Þegar er búið að opna fyrir skráningu (SJÁ HÉR).


Úrslit Í GKB Grand Open:.

1. sæti – Eilíf fergurð           Skor: -8

Jón Árni Bragason

Garðar Snorri Guðmundsson

Verðlaun: 2x Vatnajökull vesti frá 66°Norður


2. sæti – Bjarki og Viktor    Skor: -7

Bjarki Már Gunnarsson

Viktor Örn Sveinsson

Verðlaun: 2x Tindur vesti frá 66°Norður


3. sæti – Svepp og pepp      Skor: -6

Daníel Darri Gunnarsson

Sverrir Hreggviðsson

Verðlaun: 2x Gjafabréf fyrir tvo í Laugarás Lagoon


Næstir holu:

3 hola – Lilja Valgerður Björnsdóttir – 1,85 cm

7 hola – Árni Jóhannesson – 1,54 cm

12 hola – Eyþór Bragi Einarsson – 2,56 cm

16 hola – Árni Jóhannesson – 4,24

Nándarverðlaun voru gjafabréf í Minigarðinum að andvirði 10.000 kr.


Sjá öll úrslit HÉR.

Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 12. október 2026
Kiðjabergsvöllur lokar eftir gott golfsumar!
1. október 2026
Golfskálinn lokar – Kiðjabergsvöllur áfram opinn
Eftir Börkur Arnvidarson • 24. september 2026
Haust á Kiðjabergsvelli - Staða vallar og golfskála
Eftir Börkur Arnvidarson • 15. september 2026
J afntefli í Bændaglímu GKB 2026
Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson • 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson • 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson • 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson • 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik