Kiðjabergsvöllur opnar 23. maí

Valur Jónatansson • 21. maí 2026

Opnun Kiðjabergsvallar

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna opnun Kiðjabergsvallar! Frá og með laugardeginum 23. maí verður völlur opinn almenningi og tilhlökkun fyrir okkur að taka á móti kylfingum fyrir komandi golfsumar.


Hægt er að bóka rástíma frá klukkan 13:00, 23. maí næstkomandi, að hreinsunar- og vinnudegi loknum. Við vonumst til að sjá sem flesta koma og njóta golfsins, náttúrunnar og góðrar samveru í Kiðjabergi í sumar.


ATHUGIÐ:

Við viljum jafnframt benda á að golfbílar eru ekki leyfðir að svo stöddu þar sem völlurinn er enn mjög  viðkvæmur eftir veturinn. Við biðjum því alla gesti um að sýna vellinum góða umgengni, virða staðarreglur og fylgja golfsiðum.


Golfklúbbur Kiðjabergs biður kylfinga staðfesta rástímann sinn! QR kóði verður inn í Golfskála þar sem allir þurfa að skrá mætingu í rástíma. Tveir skjáir verða staðsettir í mótttöku golfskála og einnig við inngang. Staðfesta þarf mætingu að lágmarki 10 mínútum fyrir rástíma.

Kynnið ykkur málið: https://mailchi.mp/gkb/stadfestu_maetingu


Við óskum öllum gleðilegs golfsumars og hlökkum til að sjá ykkur á vellinum!

Með bestu kveðju,

Stjórn og starfsfólk Golfklúbbs Kiðjabergs.


1. október 2026
Golfskálinn lokar – Kiðjabergsvöllur áfram opinn
Eftir Börkur Arnvidarson • 24. september 2026
Haust á Kiðjabergsvelli - Staða vallar og golfskála
Eftir Börkur Arnvidarson • 15. september 2026
J afntefli í Bændaglímu GKB 2026
Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson • 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson • 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson • 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson • 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Kvennasveit GKB í 6. sæti í 2. deild 50+