Bændaglíma 2023

Valur Jónatansson • sep. 04, 2023

Hver verður kóngurinn á Kiðjabergi?

Eftir gott golfsumar þá lokum við dagskránni þann 9. september með Bændaglímu. Bændurnir að þessu sinni eru Bjarni Sigurðsson og Brynjólfur Árni Mogensen. Læknarimma af bestu gerð! Bændur skipta með sér liðum og svo verður ræst út á öllum teigum kl. 11:00.


Spilað verður Texas Scramble holukeppni þar sem lið hvors Bónda eigast við í hverju holli, hver unnin hola telur fyrir Bóndann. Forgjöf hvers liðs er reiknað sem samanlögð vallarforgjöf deilt með 2.5. Forgjöf verður þó ekki hærri en vallarforgjöf lægsta leikmanns.

Mótsgjald kr 4,500 á mann. Verðlaunaafhending fer fram um kvöldið á veglegri lokahátíð sem hefst kl 19:00.
Nándarverðlaun á öllum par 3 holum.

Lokahátíð
Um kvöldið bíður Rakel uppá stórfenglega veislu að vanda. Lamb og nýupptekið grænmeti beint frá bónda - 5.500 krónur á mann. Gengið er frá pöntunum í matinn í gegnum golfboxið þegar skráð er í mótið.
Þeir sem vilja einungis koma í kvöldmat hafið samband við Rakel.

​ATH. BÆNDAGLÍMAN ER INNANFÉLAGSMÓT. EINUNGIS MEÐLIMIR Í GKB GETA TEKIÐ ÞÁTT.



HÉR er hægt að skrá sig í bændaglímuna.

Eftir Valur Jónatansson 17 May, 2024
Kiðjabergsvöllur opnar fyrir alla kylfinga 18. maí og golfbílar leyfðir
Eftir Valur Jónatansson 13 May, 2024
"Margar hendur vinna létt verk!"
Eftir Valur Jónatansson 10 May, 2024
Kiðjabergsvöllur opnar fyrir félagsmenn!
Eftir Börkur Arnvidarson 16 Apr, 2024
Vertu með okkur í sumar!
04 Jan, 2024
Innheimta á félagsgjöldum GKB 2024
22 Dec, 2023
Jólakveðja frá Golfklúbbi Kiðjabergs
Eftir Valur Jónatansson 18 Dec, 2023
Guðmundur endurkjörinn formaður GKB. Félagsmönnum fjölgaði á árinu og eru nú 431 talsins
Eftir Valur Jónatansson 14 Dec, 2023
Framtíð Kiðjabergsvallar - Fjárfestingar í vökvunarkerfi, skemmu og vélarbúnaði
04 Dec, 2023
Aðalfundur GKB haldinn 18. desember í húsnæði Samtaka Iðnaðarins
Eftir Valur Jónatansson 22 Nov, 2023
Gefðu golfhring í jólapakkann
Fleiri færslur
Share by: