Fyrsta mót sumarsins!

Valur Jónatansson • 15. maí 2026

Grand Open 30. maí

Fyrsta golfmót sumarsins hjá Golfklúbbi Kiðjabergs, Grand Open, verður haldið þann 30. maí næstkomandi. Ræst verður út á öllum teigum. Leikfyrirkomulag er tveggja manna betri bolti með forgjöf. Þetta er punktakeppni og þannig telja punktar þess sem fékk hærri punkta á holu.


Ræst verður  út af öllum teigum á sama tíma kl. 09:00 (shotgun). Hámarks leikforgjöf karla 28 og kvenna 32. Karlar spila af gulum teigum og konur af rauðum teigum.


Karlar sem verða 70 ára á árinu og eldri spila frá rauðum teig, en leikmenn geta að sjáfsögðu beðið um undanþágu frá því, með því að skrifa það í Skilaboð.


Glæsileg verðlaun fyrir 3 efstu sætin og næst holu.


Óskir um golfbíla á meðan móti stendur skal senda á gkb@gkb.is. Staðfestingu þarf frá golfklúbbi að bíll sé frátekinn.


Mótagjald er 9.000 kr og er óendurkræft ef hætt er við þátttöku innan 24 klukkustunda fyrir fyrsta rástíma.


ATH. Ef ekki er fullt í mót áskilur mótanefnd sér að breyta upphafsteig liða til að geta opnað golfvöllinn fyrr fyrir almenna umferð.


Nánari upplýsingar og skráning í mótið HÉR.

 


Eftir Börkur Arnvidarson • 24. september 2026
Haust á Kiðjabergsvelli - Staða vallar og golfskála
Eftir Börkur Arnvidarson • 15. september 2026
J afntefli í Bændaglímu GKB 2026
Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson • 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson • 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson • 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson • 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Kvennasveit GKB í 6. sæti í 2. deild 50+
Eftir Valur Jónatansson • 18. ágúst 2026
Karlasveitin í 5. sæti í 2. deild