Bændaglíma 2021

sep. 02, 2021

Hver verður drottningin á Kiðjabergi?

Bændaglíma GKB  fer fram á Kiðjabergsvelli laugardaginn 11. september. Lopapeysu-þema, allir að mæta í lopapeysu. Verðlaun verða veitt fyrir flottustu peysuna. Spilað verður Texas-Holukeppni, þar sem Eyþór og Birkir fá að skemmta sér við að setja upp nokkrar hindranir á vellinum. Bændur í ár verða okkar bestu konur , Stella Hafsteinsdóttir og Guðrún Eyjólfsdóttir.

Það er búið að opna fyrir skráningu á GolfBox. Hægt er að skrá lið, en að sjálfsögðu er hægt að skrá sig sem einstakling og svo verða lið sett saman. Bændur skipta með sér liðum og svo verður ræst út á öllum teigum kl. 11:00. Spilað verður Texas Scramble holukeppni þar sem lið hvors Bónda eigast við í hverju holli, hver unnin hola telur fyrir Bóndann.

Forgjöf hvers liðs er reiknað sem samanlögð vallarforgjöf deilt með 2.5, þó ekki hærra en vallarforgjöf lægsta leikmanns. Mótsgjald kr 3.000 á mann.

Verðlaunaafhending fer fram um kvöldið á veglegri lokahátíð sem hefst klukkan 19:00. Nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins.

Lokahátíð
Um kvöldið bíður Rakel uppá stórfenglega veislu að vanda í golfskálanum. Hún mun bjóða upp á veglegt veislu Lambalæri að hætti bóndans með nýuppteknu grænmeti og smælki, og svo rabbarbara eftirréttur. Maturinn kostar 5.000 krónur á mann.
Gengið er frá pönntunum í matinn í gegnum golfboxið þegar þið skráið ykkur í mótið

Mótanefnd GKB
Eftir Valur Jónatansson 17 May, 2024
Kiðjabergsvöllur opnar fyrir alla kylfinga 18. maí og golfbílar leyfðir
Eftir Valur Jónatansson 13 May, 2024
"Margar hendur vinna létt verk!"
Eftir Valur Jónatansson 10 May, 2024
Kiðjabergsvöllur opnar fyrir félagsmenn!
Eftir Börkur Arnvidarson 16 Apr, 2024
Vertu með okkur í sumar!
04 Jan, 2024
Innheimta á félagsgjöldum GKB 2024
22 Dec, 2023
Jólakveðja frá Golfklúbbi Kiðjabergs
Eftir Valur Jónatansson 18 Dec, 2023
Guðmundur endurkjörinn formaður GKB. Félagsmönnum fjölgaði á árinu og eru nú 431 talsins
Eftir Valur Jónatansson 14 Dec, 2023
Framtíð Kiðjabergsvallar - Fjárfestingar í vökvunarkerfi, skemmu og vélarbúnaði
04 Dec, 2023
Aðalfundur GKB haldinn 18. desember í húsnæði Samtaka Iðnaðarins
Eftir Valur Jónatansson 22 Nov, 2023
Gefðu golfhring í jólapakkann
Fleiri færslur
Share by: