Pilsaþytur 2024 | Takk fyrir komuna!

3. ágúst 2024

72 hressar konur mættu í Pilsaþyt á Kiðjabergsvelli

Pilsaþytur 2024 var haldinn á Kiðjabergsvelli 2. ágúst og var ræst út klukkan 18:00. 72 flottar konur voru skráðar til leiks að þessu sinni. Leikið var í alskonar veðri og réð hressleikinn og gleðin ríkjum.


Mótið var 9 holu Texas Scramble þar sem tvær konur mynduðu hvert liði, vön og óvön. Vegleg verðlaun voru afhent fyrir 1-3 sætið ásamt útdráttarvinningum meðan keppendur gæddu sér á dásamlegri kjúklingasúpu hjá Rakel í golfskálanum.


BYGG, Byggingarfélag Gylfa og Gunnars var styrktaraðili mótsins eins og síðustu ár og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir.


Allar konurnar fengu glæsilegar teiggjafir frá BYGG, freyðivín og súkkulaði og frá Avita/Númer Eitt heildsölunni, Trace Minerals i vatnið sem er frábært að taka með útá völl í vatnsbrúsann til að halda vökvajafnvægi í likamanum , dásamlega góðar og sykurlausar mintur og besta Númer Eitt sótthreinsisptittið. Við þökkum þeim kærlega fyrir stuðninginn!


ÚRSLIT
Í fyrsta sæti var liðið EC,  í öðru sæti voru Mæðgurnar og í því þriðja Magnúsdóttir/Jónatansdóttir. Vinningarnir voru gjafakort frá Golf Company. Að auki voru dregnir út 12 úrdráttarviningar þar sem var dregið úr skorkortum.


Takk fyrir frábært kvöld!

'

Myndir frá deginum (smelltu á myndirnar til að stækka þær):


1. október 2026
Golfskálinn lokar – Kiðjabergsvöllur áfram opinn
Eftir Börkur Arnvidarson • 24. september 2026
Haust á Kiðjabergsvelli - Staða vallar og golfskála
Eftir Börkur Arnvidarson • 15. september 2026
J afntefli í Bændaglímu GKB 2026
Eftir Valur Benedikt Jónatansson • 11. september 2026
í ár er komið að konunum!
Eftir Börkur Arnvidarson • 8. september 2026
LOKAHÓF GKB-KVENNA | 11. september 2026
Eftir Börkur Arnvidarson • 7. september 2026
Breyttur opnunartími golfskálans
Eftir Börkur Arnvidarson • 1. september 2026
Tveir ásar og tveimur dögum
Eftir Börkur Arnvidarson • 28. ágúst 2026
Möguleg seinkun á opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Sveit Kiðjabergs vann heimamenn í úrslitaleik
Eftir Valur Jónatansson • 22. ágúst 2026
Kvennasveit GKB í 6. sæti í 2. deild 50+